Barðastrandasýsla

Vestfjarðakjálkinn er elsti hluti Íslands með um 14-15 milljón ára gamalt berg. Landslag þar er fjölbreytilegt. Jöklar hafa ráðið miklu um mótun landsins. Víða eru jökulsorfnir dalir og forn jökulsker upp af fjallabrúnum og fjöllin eru hrikaleg ásýndum, en á sunnanverðum Vestfjörðum eru línur þeirra ögn ávalari og mýkri en norðar. Meginhluti Vestfjarða nær 300-500 m hæð yfir sjávarmáli og hækkar til norðurs og vesturs.


Barðastrandasýslur ná yfir landssvæði sem nær yfir suðurhluta Vestfjarða frá Gilsfirði að Langanesi í Arnarfirði. Sýslurnar eru afar vogskornar og einkennast af því að inn af þeim skerast margir firðir og fjöllin ná fram í sjó. Undirlendi er lítið og gróður inn til landsins lítill, meðfram ströndinni er víða talsvert um kjarr og birkiskóg. Í Barðastrandarsýslum er nokkuð um vötn, tjarnir og sjávarlón. Í ám og vötnum er víða silungsveiði . Jarðhita er að finna víða á sunnanverðum Vestfjörðum og er hann nýttur til húshitunar, í sundlaugar og til fiskeldis. Landbúnaður á svæðinu byggir á sauðfjárbúskap, en jarðrækt er ekki mikil.
Í Barðastrandasýslum eru nokkrir þéttbýliskjarnar. Sá minnsti er Reykhólar, en aðrir eru Vesturbyggð sem nær yfir Patreksfjörð og Bíldudal og Tálknafjörður sem er sveitarfélag sem liggur á milli Patreksfjarðar og Bíldudals.


Gróðurfar á Vestfjörðum er um margt ólíkt því sem gerist annars staðar á Íslandi. Nokkrar sjaldgæfar tegundir plantna finnast aðeins á Vestfjörðum, en sérkenni gróðurfarsins byggja þó fyrst og fremst á fjölbreytni landslagsins, árvissum snjóalögum og litlu beitarálagi í gegnum tíðina.
Birkikjarr er einkennaisgróður svæðisins. Víða standa myndarleg reynitré upp úr lágvöxnu kjarrinu. Þessar tvær tegundir mynda líka samfellda skóga, einkum inn til dala. Víða um Vestfirði er gott berjaland.

Myndagallerý
Stekkaból | september 08