
Breiðafjörður
Breiðafjörðurinn er víðáttumikill flói á vesturströnd Íslands sem skilur að Vestfjarðakjálkann og Snæfellsnesið. Hann er 50 km breiður og 125 km langur. Helstu sérkenni hans eru þúsundir eyja, sem eru stjórnsýslulega ýmist í Snæfellssýslu, Dalasýslu eða Barðastrandarsýslu. Eyjar á Breiðafirði eru sagðar óteljandi.
Eyjarnar og mikið grunnsævi hafa þau áhrif að sjávarföll eru sýnilegri í Breiðafirðinum en annarsstaðar við Ísland. Víða á milli eyja á Breiðafirði eru miklar rastir, þegar milljónir tonna af sjó renna inn í fjörðinn og út úr honum aftur tvisvar á sólarhring og þarf að fara milli eyja eftir mjóum sundum. Þekktustu merki um þessi sjávarföll á Breiðafirði er Hvammsfjarðarröstin. En á inn- og útfalli lítur hún út eins og straumhart stórfljót. Landslag við Breiðafjörð breytist mikið eftir sjávarstöðu við fjörðinn og er talið að um einn fjórði af öllum fjörum landsins séu við Breiðafjörð. Breiðafjörður er eitt þýðingarmesta búsvæði fugla á Íslandi og meðal mikilvægari fuglasvæða í Evrópu. Einkum er um að ræða sjófugla, vaðfugla og haferni, en helsta varpsvæði arnarins er einmitt við Breiðafjörð. Ríkustu ástæður fyrir auðugu fuglalífi eru gnótt fæðu, milkil sjávarföll og gjöfull sjór.
Allt fram á miðja síðustu öld var búið í mörgum eyjum á Breiðafirði og var fjörðurinn jafnan talinn vera mikil matarkista fyrir þá sem þar bjuggu. Helstu eyjaklasar á norðurhluta Breiðafjarðar eru Flatey, Hergilsey, Svefneyjar, Hvallátur og Skáleyjar. Á sunnanverðum firðinum eru helstar Öxney, Borkey og Gvendareyjar. Undir Dalasýslu liggja þessar eyjar helstar, Fremri-Langey stærst, Efri–Langey, Arney, Purkey og Hrappsey sem var talin stórbýli áður fyrr. Í eyjunum varð aldrei skortur á mat á hallæristímum og var þar bæði fjölmennt og blómlegt mannlíf. Nú eru allar eyjar nema Flatey komnar úr ábúð, en í Flatey er búið allt árið. Ferjan Baldur hefur viðkomu í Flatey tvisvar á dag á sumrin á ferð sinni yfir Breiðafjörð. Flatey hefur á undanförnum árum orðið vinsæll ferðamannastaður. Þar eru bæði veitingahús, heimagisting og Hótel Flatey auk þess sem hægt er að tjalda þar.