
Dalir!
Sérstaða Dalanna felst í Dalirnir ná yfir tiltölulega lítið landssvæði og þeir búa yfir magnaðri sögu, náttúrufegurð, og kyrrð sem freistar nútímamannsins æ meir.
Dalasýsla liggur umhverfis Hvammsfjörð fyrir botni Breiðafjarðar. Dalir liggja í dag utan alfaraleiðar og utan hringvegar, en með góða tengingu við hann um Bröttubrekku. Til eru nánast samfelldar frásagnir úr sögu Dalanna allt frá landnámi Íslands, einna frægust þessara sagna er Laxdæla. Á landsnámsöld áttu sér þar stað helstu örlaga- og átakaatburðir í Íslandssögunni og frá 9 og 10 öld gegndi héraðið lykilhlutverki í siglingum íslenskra manna til Grænlands og til Norður- Ameríku.
Eini þéttbýlisstaður Dalasýslu er Búðadalur. Hann dregur nafn sitt af búðum Höskuldar Dalakollssonar frá tíundu öld. Aðalatvinnugrein Dalamanna er landbúnaður og þjónusta í kring um hann, en verið er að byggja þar upp ferðaþjónustu og þar er rekin upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn. Í Dölunum eru fjölmargir afþreyingarmöguleikar, skoðunarferðir, hestaferðir, selaskoðun, gönguleiðir, kajaksiglingar, lax- og silungsveiði, fuglaskoðun og söguferðir. Á Eiríksstöðum er rekin lifandi sögusýning.