
Snæfellsnes
Sérstaða Snæfellsness felst í fjölbreyttri náttúru og ekki síst nálægðinni við Breiðafjarðareyjarnar og lífríki fjarðarins. Snæfellsnes er um 90 km hár og oft hrikalegur fjallgarður sem hefur myndast við eldgos og jökulruðning. Að sunnanverðu afmarkast það af Hítará en að austan af Gljúfurá á Skógarströnd.
Á fjallgarðinum ber mest á Sæfellsjökli (1446 m.y.s.) sem er einn best þekkti jökull landsins og sá eini sem sést frá Reykjavík. Að auki eru á fjallgarðinum mörg falleg fjöll s.s. Hesturinn, sem sést lika úr Reykjavík í góðu skyggni, Ljósufjöll , Skyrtunnur og Kirkjufell sem er staðartákn Grundarfjarðar. Á svæðinu umhverfis Snæfellsjökul er eini þjóðgarðurinn á Vesturlandi, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull.
Strönd Snæfellsness meðfram Faxaflóa er láglend og vogskorin og fjörurnar eru sendnar. Frægastar eru Löngufjörur, en þær eru vinsæl reiðleið. Frá Arnarstapa og norður fyrir nesið er ströndin klettótt og sæbrött og þar eru áhugaverðir staðir að skoða s.s. Dritvík og Svörtuloft. Norðurströnd Snæfellsness er vogskorin, undirlendi er lítið og firðir skerast inn úr ströndinni. Á norðanverðu Snæfellsnesi eru nokkrir þéttbýlisstaðir sem hafa byggst upp í tengslum við sjávarútveg. Þeir eru þessir frá vestri til austurs; Hellissandur, Rif, Ólafsvík, Grundarfjörður, Stykkishólmur.
Frá jarðfræðilegu sjónarmiði hefur Snæfellsnesið sérstöðu, einkum, utanvert nesið. Þar er mikið af eldgígum, fjölbreytt hraun og margir hellar og þar er að finna bæði heitt og kalt ölkelduvatn. Landslagið einkennist af fallegum strandlengjum, hraundröngum, stuðlabergi, fossum, ám og vötnum og víða eru fallegar gönguleiðir.
Það er ekki bara náttúran á Snæfellsnesi sem er heillandi í öllum sínum fjölbreytileika. Á Snæfellsnesi er mikil sagnahefð og þar gerðust m.a. Eyrbyggja og saga Bárðar
Snæfellsáss. Enn á eftir að grafa upp rústir fornminja og rannsaka þær, en óhætt er að segja að sagan mæti ferðamanninum við hvert fótmál. Ferðaþjónusta á Snæfellsnesi er vaxandi og er nú boðið upp á fjölmarga afþreyingarmöguleika þar ásamt allri þeirri þjónustu sem ferðamaðurinn sækist eftir.