Dagsferð fyrir Klofning
Dagsferð fyrir Klofning á Fellsströnd í Dalasýslu
Það er skynsamlegt að ætla sér daginn í að skoða þessa skemmtilegu leið.
Fyrst er ekið að Hvammi í Dölum sem var eitt helsta höfðingasetur í Dalasýslu. Þar bjó Auður djúpúðga Ketilsdóttir landnámskona. Þarna bjuggu fleiri sögufrægir einstaklingar. Þórður gellir Ólafsson mikill höfðingi á 10. öld og Hvamms Sturla ættfaðir Sturlunga. Snorri Sturluson fæddist í Hvammi.
Krosshólar eru klettaborg rétt við veginn á leið út á Fellsströnd. Auður djúpúðga, landnámskona í Dölunum, fór þangað til bænahalds. Að sögn Landnámabókar lét Auður reisa þar krossa og til minningar um það hefur verið reistur steinkross uppi á klettaborginni.
Frá Hvammssveitinni og út á Fellsströnd eru nú margir bæir í eyði. Eitt af merkari höfuðbólum á Fellsströnd var Staðarfell. Staðarfell hefur um langan aldur verið kirkjustaður. Einn af þeim höfðingjum sem þar bjuggu var Þórður Gilsson, faðir Hvamms-Sturlu. Á seinni öldum var einna þekktastur Bogi Benediktsson, fræðimaður, en hann samdi hið mikla rit, Sýslumannaævi.
Fyrir og um næst síðustu aldamót sátu landskunnir valdsmenn á Staðarfelli stuttan tíma, þar má nefna Hannes Hafstein, skáld og ráðherra (1886) og Páll Briem, sem seinna varð amtmaður (1886-87). Síðastur höfðingja á Staðarfelli var Magnús Friðriksson (1862-1947). Þegar hann hætti búskap árið 1921, gaf hann jörðin til stofnunar kvennaskóla.
Húsmæðraskóli var á Staðarfelli frá árinu 1927-1976. Síðustu tíu árin rak Ingigerður Guðjónsdóttir skólann af miklum myndarskap og var þá byggt við skólann.
Frá 1980 hefur verið rekin þar meðferðarstöð á vegum S.Á.Á.
Vestan við Staðarfell, hjá Ytrafelli er eitt mesta skóglendi í Dalasýslu. Það er friðað svæði í umsjá Skógræktar ríkisins., þar er líka hring aksturleið upp í svokallaða Efribyggð, fallegan dal sem er bak við Staðarfellsfjallið.
Klofningur er klettastapi sem liggur í sjó fram og skilur á milli Fellsstrandar og Skarðsstrandar. Til að tryggja veg fyrir hann þurfti að sprengja fyrir. Þar er hringsjá með merkingu helstu kennileita. Útsýni þaðan er fagurt hvort heldur sem horft er til Snæfellsness, sunnanverðra Vestfjarða eða yfir Breiðafjörð. Í góðu skyggni sér til Snæfellsjökuls í suðvestri, en allt vestur til Skorarhlíða í norðvestri. Framundan Klofningi til suðvesturs liggja svo Suðureyjar allar, en Vestureyjar liggja framundan Gilsfirði og Barðaströnd og er allbreiður flói á milli. Suðureyjar liggja bæði í Dalasýslu og Snæfellsnessýslu. Af þeim eyjum er tilheyra Dalasýslu er Fremri-Langey stærst, Efri–Langey, Arney, Purkey og Hrappsey sem var talin stórbýli áður fyrr. Þar var rekin prentsmiðja á árunum 1773-1795 og þar var prentað fyrsta tímarit á Íslandi – Islandske Maanedstidender.
Klakkseyjar eru áberandi í eyjaklasanum en þar var búið fyrr á öldum. Klakkar eru eina verulega háa eyjan á Breiðafirði og sjást þeir hvaðanæva að við sunnanverðan Breiðafjörð, þar sem þeir eru í sjónmáli. Í Dímonarvogi í Klakkeyjum leyndist Eiríkur rauði áður en hann sigldi til Grænlands.
Skarð á Skarðsströnd. Skarð var einna kunnast allra höfuðbóla við Breiðafjörð og þar hefur sama ættin lifað og starfað síðan um 1100. Var það bæði vegna mikilla landaeigna á landi og í eyjum sem og vegna mikilla umsvifa og valda, en Skarð var bæði höfuðból og kirkjustaður. Í Skarðskirkju er margt um stórmerka gripi, altaristafla sem er talin til merkustu kirkjulegra minja hér á landi. Munnmæli segja að hún sé gefin kirkjunni af Ólöfu ríku á 15. öld og predikunarstóll sem er frá 17. öld.
Þekktust Skarðverja á miðöldum eru hjónin Ólöf ríka Loftsdóttir og Björn Þorleifsson, hirðstjóri. Englendingar drápu Björn úti í Rifi árið 1467 .,,Eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði” er haft eftir Ó löfu eftir að Englendingar höfðu vegið mann hennar og hefndi Ólöf vígsins grimmilega. Hún bjó á Skarði til dauðadags 1479.
Fyrsta fasta verslun í Dalasýslu hófst í Skarðsstöð 1890 og stóð til 1911. Eftir það var þar rekið útibú frá verslun í Stykkishólmi nokkuð frameftir öld. Þegar komið er í Saurbæ er hægt að halda áfram til norðurs yfir Gilsfjarðarbrú, til Reykhóla og áfram vestur á firðieða beygja til hægri og fara yfir Svídadal, aftur inn í Dalina og annaðhvort til Búðardals eða að Laugum í Sælingsdal.