Gullganga í vitann- ganga með leiðsögn
Gönguferð frá Hænuvík.
Við byrjum á hlaðinu heima og göngum þaðan beina stefnu niður á Gullhól þar sem við stoppum og saga hólsins er sögð. Við höldum svo áfram niður i Steinhús og þar er farið niður í fjöru. Þar stoppum við aftur og fræðumst um gömlu réttina og verbúðirnar sem er raðað í bakkana.
Haldið er áfram eftir sléttum sandinum og labbað inn í Klakk en þar er farið upp á bakkana til að sneiða hjá stórgrýttri fjörunni. Eftir bökkunum göngum við inn að vörðunni sem stendur tígurreist á bökkunum og förum þar aftur niður í fjöru.
Við göngum áfram eftir fjörunni og horfum upp á Stekkaflatir og Hænuvíkurnúp. Á landamerkjunum förum við upp úr fjörunni við rauðan stein og göngum eftir bökkunum þangað til komið er að hliði . Eftir að hafa farið í gegn um það er komið í Nýja flagið og göngum eftir túninu út í Strandvík en þar stendur karlinn í fjörunni sem við heimsækjum og heyrum sögu hans.
Við höldum áfram að bænum Sellátranesi og förum þar í gengum gamalt verkfærahús sem er uppfullt af sögum og dóti sem er verulega gaman að skoða.
Á hlaðinu er fræðumst við um búskapinn á Sellátranesi og þar hangir hangikjötslæri út undir rjáfri sem fólk getur fengið smakkað af ef það hefur áhuga á því. Hér förum við svo niður í fjöru og göngum eftir fjörunni þangað til komið er að kúagötunni og förum upp á tún aftur, yfir læk og út í Ólafsvita. Við vitann er áð og sögð saga vitans. Því næst förum við inn í vitann og upp á efstu hæð, þar sem hægt er að fara út, njóta útsýnisins og skoða fjallahringinn. Leiðsögumaður segir frá örnefnum, bæði á fjöllum og nánasta umhverfi vitans. Eftir sögustund í vitanum röltum við heim í rólegheitunum, hlustum á kyrrðina og fuglana og heyrum sjóinn bullast á steinunum.